Fimm starfsmenn frá Tjarnarskógi fóru á námskeið í ART

Í vetur fóru fimm starfsmenn frá Tjarnarskógi á námskeið í ART. Linda, Ingveldur Þórey, Jelena, Sigmar og Guðrún.
ART stendur fyrir Aggression Replacement Training og er fastmótað uppeldisfræðilegt þjálfunarmódel sem hefur það að markmiði að fyrirbyggja óæskilega hegðun og kenna aðrar leiðir til að leysa samskipta-, tilfinninga- og hegðunarvanda. Módelið er byggt á ýmsum stefnum og straumum úr sálfræði til dæmis atferlismótun. ART var þróað í Bandaríkjunum af Arnold P. Goldstein, Barry Glick og John C. Gibbs.
Í ART er unnið með félagsfærni, sjálfsstjórn og siðferðisvitund þátttakenda. Með því að vinna með þessa þrjá þætti samhliða næst betri og varanlegri árangur heldur en ef aðeins væri unnið með einn þátt í einu. Þessir þættir eru meðal annars þjálfaðir með sýnikennslu, hlutverkaleik, jákvæðri styrkingu, æfingum og umræðum.
Á Tjarnarlandi höfum við verið að vinna með hópa í ART undanfarin ár þar sem að Sigríður Dóra, Sóley og Rósa Dóra eru með réttindi í að vera með ART hópa .  En nú sjáum við að við getum unnið með allan elsta árganginn næsta vetur þar sem að við erum komin með það marga sem hafa lokið réttindanámskeiði. *Nánar má lesa um ART hér https://www.isart.is
Við óskum hópnum kærlega til hamingju með árangurinn.