ART-þjálfun í Tjarnarskógi –tveir nýir með réttindi

ART-þjálfun í Tjarnarskógi – Markviss vinna með samskipti og sjálfsstjórn

Í vetur fóru tveir kennarar frá Tjarnarskógi, Nína og Guðrún Ásta, á námskeið í ART (Aggression Replacement Training).
ART er fastmótað, uppeldisfræðilegt þjálfunarmódel sem hefur það að markmiði að fyrirbyggja óæskilega hegðun og kenna börnum aðrar leiðir til að takast á við samskipta-, tilfinninga- og hegðunarvanda. Módelið byggir meðal annars á aðferðum úr atferlissálfræði og var þróað í Bandaríkjunum af Arnold P. Goldstein, Barry Glick og John C. Gibbs.
ART felur í sér samhliða þjálfun í þremur lykilþáttum:
🔹 Félagsfærni
🔹 Sjálfsstjórn
🔹 Siðferðisvitund
Þjálfunin byggir á sýnikennslu, hlutverkaleikjum, jákvæðri styrkingu, æfingum og umræðum, sem saman stuðla að betri og varanlegri breytingum í hegðun og samskiptum.
Á Tjarnarlandi höfum við nýtt ART aðferðafræðina með elsta hópnum, þar sem markvisst hefur verið unnið með þessa þrjá þætti. Í dag eru sjö ART-þjálfarar á Tjarnarlandi sem hafa lokið réttindanámskeiði.
Við óskum Nínu, Guðrúnu Ástu og öllum hópnum kærlega til hamingju með þennan árangur og hlökkum til að fylgjast með áframhaldandi vinnu með ART í leikskólastarfinu.
📎 Nánar má lesa um ART á vefnum www.isart.is