Í Tjarnarskógi eru 8 kennarar sem eru búnir að fara á námskeið í ART og eru því með ARTstundir með elstu nemendum leikskólans. Eftir veturinn verða allir í elsta hópnum búnir að fara í ARTtíma. Þau læra að þekkja ART og geta nýtt sér þau verkfæri sem ART býr yfir eins og hvert og eitt er fært um. ART stendur fyrir Aggression Replacement Training og er fastmótað uppeldisfræðilegt þjálfunarmódel sem hefur það að markmiði að fyrirbyggja óæskilega hegðun og kenna aðrar leiðir til að leysa samskipta-, tilfinninga- og hegðunarvanda. Módelið er byggt á ýmsum stefnum og straumum úr sálfræði til dæmis atferlismótun. ART var þróað í Bandaríkjunum af Arnold P. Goldstein, Barry Glick og John C. Gibbs.
Í ART er unnið með félagsfærni, sjálfsstjórn og siðferðisvitund þátttakenda. Með því að vinna með þessa þrjá þætti samhliða næst betri og varanlegri árangur heldur en ef aðeins væri unnið með einn þátt í einu. Þessir þættir eru meðal annars þjálfaðir með sýnikennslu, hlutverkaleik, jákvæðri styrkingu, æfingum og umræðum.