Tjarnarskógur er níu deilda leikskóli á tveimur starfsstöðvum. Í daglegu tali eru starfsstöðvarnar kallaðar Skógarland og Tjarnarland. Á Skógarlandi eru sex deildir og þar dvelja börn á aldrinum eins til fjögurra ára en á Tjarnarlandi eru þrjár deildir og þar dvelja börn á aldrinum fjögurra til fimm ára.
Leikskólastjóri er Sigríður Herdís Pálsdóttir. Hún fer á milli húsa eftir þörfum. Aðstoðarleikskólastjórar eru Heiðdís Ragnarsdóttir með starfsstöð á Tjarnarlandi, Heiðdís er einnig deildarstjóri á Skógarbæ. Rósa Dóra er með starfsstöð á Skógarlandi en sinnir einnig viðbótarkennslu á Tjarnarlandi.
Sérkennslustjóri er Sóley Orradóttir og er hún í báðum húsum.